3.3.09

Strákarnir í Barðanum toppuðu Heklu um helgina.

Mikið var um að vera í Hólaskógi um helgina, m.a. hið árlega þorrablót stöðvar 6. Eru þar á ferð kappar á flestum öflugustu fjallabílum landsins. Sýnist mér þetta vera stór hópur af fullorðnum prökkurum,sem sleppa algerlega stráknum í sér lausum, mikið grín og mikið gaman. Einnig mættu strákarnir úr Barðanum í vetrarferð hjá Óbyggdaferdum. Var stefnt á Heklu enda ægifagurt veður. Voru líka á svæðinu nokkrir félagar úr Can am klúbbnum , slógust þeir með í för ásamt Íslenska Ofurmenninu , sem einnig var á staðnum.. ( til að sjá myndir úr Hekluferð Barðanns smellirðu á myndina af þeim hér til hliðar....

0 comments: