24.2.09

Zúúberferð FM 95,7 21. febr. 2009

FM 95,7 , Mountain Dew og Motormax stóðu fyrir leik í morgunþættinum Zúúber þar sem heppnir ( mjög heppnir) hlustendur unnu sér inn fjórhjólaferð hér hjá okkur í Óbyggðaferðum. Þau Svali og Sigga Lund báru hitann og þungann af þessari ferð, því þriðja hjólið hann Gassi náði sér í flensu rétt fyrir brottför. Var veðurútlit ekki gott, en svona Zúúber fólk kallar ekki allt ömmu sína. þannig að hópurinn lagði af stað út í óvissuna. Hamingjan og gleðin voru við völd þá 5 til 6 tíma sem ferðin stóð ( í ágætis veðri ). Þegar í skála kom var síðan slegið upp heljarinnar parý sem stóð fram undir morgun. Til að sjá myndir úr ferðinni smelltu á myndina hér til hliðar........( því miður eru ekki margar myndir komnar inn því myndavélin mín drukknaði í einni ánni, en ég fæ fleiri myndir frá öðrum síðar)

0 comments: