5.2.09

Vetrar ríki á Dómadalsleið. helgin 30-31 jan 2009.

Síðustu helgi var mjög líflegt og mikið um að vera í Hólaskógi. Gamalgróinn og samheldinn hópur af suðurnesjum, (eftir því sem ég best veit kalla þau sig þorrablótshópinn ) héldu sitt árlega þorrablót. Mættu á svæðið á föstudags kvöldið og hituðu upp fyrir blótið næsta kvöld. Á laugardeginum fóru flestir í jeppatúr í Landmannahellir, í erfiðu færi en fallegu veðri, (eins og sést á myndinni hér til hliðar). Síðan var Þorranum blótað af mikluklum krafti fram eftir nóttu . Langar mig að þakka þeim fyrir helgina og að hafa mokað pallinn og sitt hvað fleira sem þau gerðu innan húss. Einnig voru mættir á Föstud.kvöld nokkrir gallvaskir menn á fjórhjólum sem ætluðu inn í Hungurfit á laugardeginum og gista þar. Sem reindist vonlaust sökum færðar, og voru þeir því aðra nótt í Hólaskógi sem bara var gaman.(ef smellt er á myndina hér til hliðar sérðu myndir sem teknar voru í fjórhjólaferðalaginu)

1 comments:

Unknown said...

Frábær helgi í Hólaskógi, eiga væntanlega eftir að vera mun fleirri..