13.2.09

Zúúberferð FM 95,7 og MOUNTAIN DEW 21- 22 febr.


Skammdegis sólin.
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Jæja það sem stendur til að gera næstu helgi er í rauninni einfaldlega það, að eiga mjög góðan dag (og kvöld) á fjöllum. Við gistum í þessum líka fína skála þar sem við hjá Óbyggðaferðum erum með okkar aðalbækistöðvar. Erum við þegar búin að taka frá gott ferðaveður þann 21. næstkomandi. Svona gæti dagskráin litið út. Mæting á laugardagsmorgni (ca kl.10) í Hólaskóg eða það sem við teljum skemmtilegra er að mæta strax á föstudagskvöldi. Leggjum í hann á fjórhjólunum um kl.12 frjáls eins og fuglinn förum við nú á marga áhugaverða staði í nágreninu og einnig lengra frá. (ekki gleyma myndavélinni því fjallafegurðin getur verið alveg eínstök). Lengd þessarar Zúúberferðar FM 957 og Mountain Dew verður á bilinu 3 - 5 tímar. Fyrir þá sem verða ekki dregnir út í leiknum, er hægt að leigja hjól hjá okkur á sérstöku Zúúber verði, aðeins kr. 15.000. Eftir ferðina tekur við hefðbundin skálastemning , grill, spjall, sauna, spilamennska , og söngur fram á nótt. Aðrar upplýsingar..... Til að finna Hólaskóg ferðu til baka á heimasíðu Óbyggðaferða og smellir á Hólaskógur, skrollar niður og smellir á Hólaskógur á korti. Við höfum allan fatnað og skóbúnað á svæðinu fyrir fjórhjólaferðina( góður fatnaður ) Gistipláss fyrir 80 manns og tvö vel búin eldhús. Nánari uppl. í síma 6612503
Unnar Garðars.

1 comments:

Anonymous said...

þetta gæti orðið alveg zúber ferð !!!!