Helgin var vægast sagt mjög lífleg og skemmtileg hér hjá okkur í Óbyggðaferðum . Á föstudag mætti hópur frá Loftleiðum Icelandic og var farin skemmtileg skoðunar ferð um nágrennið á fjórhjólunum, ásamt því að lenda í smá ævintýrum á bílunum á hafinu. Á laugardeginum stóð mikið til, voru mættir á staðinn tveir Íslandsmeistarar úr sitt hvorri jaðarsportgreininni .Þau Ágústa Fanney Snorradóttir á snjóbretti og Davíð Óskar Davíðsson í fjallabruni unglinga á fjallahjólum. Ætlunin var að gera tilraun með að ferja fólk upp á Heklutopp á beltafjórhjólum með sérstakar snjóþotur í dragi fyrir mannskapinn. Fengum við þau Ágústu og Davíð til að kanna brekkurnar með það í huga hvort möguleiki væri á að bjóða upp á einhvern svona pakka hér hjá Óbyggðaferðum. Þarf ekkert að orðlengja það neitt frekar, allt skoraði langt umfram væntingar. Svo vel tókst til að það er engin spurning að þetta er eitthvað sem við komum til með að bjóða fólki uppá. Sjáum við fyrir okkur skíði- bretti, fjallahjól og að ógleymdum þeim sem vilja bara komast í stórfenglegt útsýni af Heklutopp. Svona ferðir koma til með að detta inn með stuttum fyrirvara þar stílað verður inn á góðviðrisdaga. Áhugasamir geta fylgst með fréttum hér á síðunni og einnig er hægt að hafa samband við Unnar í síma 661-2503. Til að skoða myndir úr ferðinni smellirðu á myndina hér til hliðar.....
10.3.09
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Post a Comment