3.3.09

Stöð 6 Þorraferð (stoppið í Hólaskógi)og afhending Óttarsinns 2009

Halldór Þorkellsson heitir maður nokkur , hann, er reyndar á myndinni hér til hliðar. Eins og glöggir lesendur sjá þá heldur kappinn á stórmerkilegum grip - Óttinn. Er þetta verðlaunagripur sem lítur út eins og ópið ( málverkið ). Veit enginn hver eða hvað skapaði listaverkið, en það gerir Óttarinn enn dularfyllri. Akademía stöðvar 6 veitir einum manni í þorraferðinni árlegu gripinn góða til varðveislu eitt ár í senn. Þarf sá hinn sami að hafa skarað fram úr í að sína karlmannlegan ótta og leyna fyrir öðrum ótta sínum og skelfingu vegna vangetu sinnar til drifgetu á fjöllum. Halldór Þorkellsson er vel að þessum verðlaunum kominn og eins og sést á myndinni tekur hann sig einstaklega vel út með gripinn góða. ( varðveitir hann nú gripinn annað árið í röð AÐ EIGIN SÖGN !!!!!!!!!) sjá fleiri myndir smella á myndina af Halldóri......

0 comments: