Nú er stutt í helgina og enginn hefur haft samband vegna skíðagöngupakkans sem við ætluðum að bjóða upp á þessa helgi í Hólaskógi . Þannig að sjálf hætt er við það dæmi . Ætla Óbyggðaferðamenn að prufukeyra í staðinn annað dæmi sem líka hefur lengi staðið til að prufa. Beltahjóla ferð á Heklutopp með brettafólk (og einn fjallahjólakappa, sem ætlar að láta sig gossa með þeim). Komum við til með að bjóða upp á slíkar ferðir í allskyns útfærslum. En veðrið hefur mikið með það að segja hvernig ferðirnar koma til með að vera. ( Myndir úr væntanlegu Heklubruni koma á síðuna eftir helgi. )
5.3.09
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comments:
Hvað kostar svona dæmi, þ.e. að láta skutla sér upp á topp og renna niður á snjóbretti? t.d. ef við værum nokkur saman í hóp, t.d. 4-5 manns.
Post a Comment