16.12.10

Fossaferðin hjá Óbyggðaferðum : myndband

Þetta myndband var tekið í einni af skoðunarferðunum frá Hólaskógi og sýnir nokkuð vel um hvað þessar ferðir okkar snúast. Það er einfaldlega það að eiga góðan dag í okkar fallegu náttúru.
thttp://www.youtube.com/watch?v=1RA8jQqZmy0il að sjá myndbandið smella á linkinn

27.11.10

Í Hekluhlíðum á miðnætti 27.11.2010


nov. 2010 276
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Myndin tekin til norðausturs Krakatindur og Rauðfossafjöll sjást vel í tunglsljósinu. Fleiri myndir væntanlegar úr þessari snilldar ferð á Heklu.

10.11.10

Gengið til rjúpna með myndavélina að vopni


nov. 2010 118
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Nú stefnir í mikið frost og heiðskýrt veður um næstu helgi,við hjá Óbyggðaferðum ætlum að bjóða upp á dagskrá fyrir þá sem hafa gaman af því að ljósmynda úti í náttúrunni. Föstudagskvöld norðurljós og hugsanlega torfhúsa myddatökur með kerta og kyndla lýsingu eða bara eins og hver vill hafa það. Á laugardag göngum við svo til rjúpna í stórkostlega fallegu umhverfi í Skógræktinni Þjórsárdal farið verður á bíl eða bílum að Dímon og þar dreifir mannskapurinn sér ca. 3-4 tíma og menn reyna að finna rjúpur og skjóta þær með myndavélinni. Verður þetta skytterí líka keppni því þegar komið verður aftur til baka í skálann Hólaskógi skoðum við saman afrakstur dagsins á breiðtjaldi og veljum besta rjúpnaskotið. Grillum og höfum gaman..... nánari uppl. í s. 661 2503

14.10.10

Ferðafrelsi 874 - 2010

Nú er frétta síðan hér að komast aftur í gang eftir langt stopp.
Smellir þú ámyndina hér til hliðar , sérðu fleiri myndir sem voru teknar 2.okt. 2010 í mótmælaferð sem farin var í Vonarskarð.

30.4.10

Hólaskógur gisting - Mountain Hut


April2010 c 210
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Vekjum athygli á að í Hólaskógi er mjög góð aðstaða fyrir stærri sem smærri hópa til gistingar. Er hægt að sjá myndir teknar inni í skálanum með því að smella á myndina hér til hliðar.

23.4.10

Föstudagsferðir kl. 14°°


mars 187
Originally uploaded by ÓbyggðaferðirFöstudagstilboð á fjórhjólaferðum.
Frá og með næstkomandi föstudegi verða farnar fjórhjólaferðir frá Hólaskógi, alla föstudaga kl.14. Ferð fyrir alla og er enginn lágmarksfjöldi í þessar ferðir. Farinn er Fossaferðin eins og við köllum hana og tekur ca.3-5 klst. ( flottur hringur ) og margt að sjá.
Verð. kr. 17.500 pr.mann miðað við tvo á hjóli.

Skráning og nánari uppl:
Unnar s.661 2503
info@icesafari.is
info@atvtravel.is

13.4.10

Snjóferðir á beltafjórhjólum


April2010 210
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Ekki hægt að treista eldgosum, hafði fyrir því að setja þrjú hjól á belti til ferðalaga að gosinu á Fimmvörðuhálsi. En þá stoppar það bara án þess að ég hefði leift það. En það er enn hægt að fara og skoða gosstöðvarnar þó ekki gjósi. Og að ógleymdri Heklu sem alltaf er gaman að toppa á fjórhjólunum. Hafir þú áhuga á svona ferðum verða beltin undir í nokkra daga í viðbót ( það er að koma sumar )
Uppl. s. 661 2503
www.atvtravel.is

5.4.10

Beltahjólaferðir að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi.

Eftir páska bjóða Óbyggðaferðir upp á útsýnis ferðir að gosinu á
beltahjólum ( eru í raun litlir snjóbílar sem komast allt ) hjólin verða þrjú og eru tveggja manna, þannig að sætisframboð eru fimm fyrir utan gætinn.

Meira hér á síðunni þegar skipulag og verð eru komin á hreint.

30.3.10

Stóra gosferðin 27.mars 2010

Það eru engar ýkjur ef ég segi að ferðin síðustu helgi hafi verið dálítið erfið á köflum. En við vorum á ferðinni umkringd fegurð fjalla, dala og Jökla fram á nótt. Lögðum af stað frá Hólaskógi um hádegi, fengum sand og moldrok að Heklu, síðan héldum við beina leið að Dalakofanum ( nesti og kaffi ) leiðin lá síðan suður undir Laufafell, þaðan að Álftarvatni ( myndin til hliðar tekin þar ) haldið áfram í Hvanngil, stoppuðum þar bættum bensíni á hjólin og næringu í kroppinn. Var nú tekin stefnan á Mýrdalsjökul og ætlunin var að fara hann endilangann til suðurs að eldstöðinni, á Fimmvörðuhálsi. Ekki vorum við komin langt inn á jökul þegar færið versnaði all verulega og ljóst var að ekki næðist að komast þá leið að eldgosinu. Héldum því næst niður Mælifellssand að Markarfljótsgljúfri, ( þar var flott útsýni yfir á gosstöðvarnar ) næst lá leiðin niður Fljótshlíðina til Hvolsvallar og Hellu. Þaðan ekið á móti norðanvindi og brunagaddi alla leið til baka í Hólaskóg. Hörku ferð og hörku mannskapur.

25.3.10

Fjórhjólaferð að eldstöðvunum 27. mars


Á mýrdalsjökli.
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Næstkomandi laugardag er mjög stór og krefjandi fjórhjólaferð frá Hólaskógi. Brottför ca.milli kl.10 -11. Í stuttu máli verður stefnan tekin austur á Mælifellsand og farið eftir Mýrdalsjökli að eldstöðvunum. Þar verður væntanlega mikið tekið af myndum og margt skoðað.Bíðum til myrkurs til að sjá gosið þannig líka. Síðan er kvöldkeyrsla heim í Hólaskóg. Verður þetta ekki nein stressferð og margt annað skoðað á leiðinni. Væntanlega er harðfenni og flennifæri eins og síðustu helgi svo þetta ætti ekki að vera neitt mál.

Verð. pr. hjól kr. 40.000 ( 20.000 kr. á mann ef tveir á hjóli )
Komi menn í ferðina á eigin hjólum kr. 5000 og eru gistingar í Hólaskógi innifalið.

Ath. skráning í s. 661 2503 og info@atvtravel.is fyrir kl. 20 á föstudag

17.3.10

Helgin 19.-21. mars

Styttist í helgina, reikna með drauma færi ( harðfenni ) og ætti að vera auðvelt að búa til flotta ferð í Landmannalaugar, jafnvel með viðkomu á Heklutoppi ef skyggni er gott. Er að tala um ferð sem farin yrði á laugardeginum, og síðan skálastemning í Hólaskógi á eftir, skoðaðar myndir á breiðtjaldi úr ferðinni fyrr um daginn, saunabað + eitthvað kalt og hressandi ( fyrir þá sem það vilja ) og að sjálfsögðu kýlt út vömbina af góðum mat. ( sem menn koma með sjálfir )
Mæting: föstudagskvöld og gert klárt um kvöldið.Lagt af stað ekki seinna en kl. 10 á laugardegi. Vonlaust að segja til um lengd ferðar og komu aftur í Hólaskóg. Stefnum á milli kl. 17 og 19 skiptir ekki öllu.
Verð : Hjól + bensín + 2 gistinætur, sauna að vild og öll aðstaða í Hólaskógi. Tilboðsverð kr. 35.000 hjólið ( 17.500 kr. á mann ef menn tvímenna á hjóli )
Komi menn á einka hjóli kr. 5,000 ( ferðin + 2 gist.ingar+ sauna+ aðstaða í Hólaskógi )

Skráning í ferðina... s. 661- 2503 og info@atvtravel.is

14.3.10

Helgin 12-14 mars 2010

Skíðagöngu hópur frá Útivist, sem ekki lætur slæmt veðurútlit stoppa sig, mætti hér á föstudagskvöldið, í þoku og
Blautu veðri, ekki kanski það besta fyrir skíðagöngu. En á laugardeginum héldu þau af stað að leita uppi snjóinn, því enn var þoka og ekkert skyggni, og allur snjór farinn í nærumhverfi Hólaskógs. Héldu þau upp að Háafossi á bílum og gengu síðan norðaustur upp í þokuna á Fossheiðina. Fljótlega gengu þau upp úr þokunni og fengu uppskorið bæði gott færi og veður. Fóru þau einhverja 20 km. var slakað á í saunabaðinu á eftir. Gistu aðra nótt og Átti að skoða Gjánna og fl.á heimleiðinni á sunnudeginum. : Langar að vekja ath. á því að með í för var maður sem heitir Grétar Williams ,og er hann með ansi hreint flott og fróðlegt myndasafn úr ferðum um Ísland á flikker. (7000 myndir ) eflaust verður hægt að sjá myndir frá honum líka frá þessari helgi.
Einnig mættu á föstudagskvöld nokkrir félagar úr Landróverklúbbnum
og fóru þeir alla leið í Laugafell næstum beina leið eftir gps.á laugardeginum enda draumafæri. Komu einnig landroverfélagar að norðan á svipuðum tíma í Laugafell. Fór ég með í þessa ferð á mínum Landrover ( enda félagi að sjálfsögðu ) en gisti ekki heldur fór einbíla til baka í Hólaskóg.
Flottur túr en nú mætti fara að frysta , þá yrði hálendið ein hraðbraut hvert sem er og ótrúlega slétt.

11.3.10

Snjóaði um helgina......en

Snjóaði mikið og ringdi líka mikið um síðustu helgi, engu að síður margt í gangi

upp í Hólaskógi.

mars d 119
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
sjá myndir smella á mynd....

4.3.10

Föstudagstilboð á fjórhjólaferðum.


mars 187
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Föstudagstilboð á fjórhjólaferðum.
Frá og með næstkomandi föstudegi verða farnar fjórhjólaferðir frá Hólaskógi, alla föstudaga kl.14. Ferð fyrir alla og er enginn lágmarksfjöldi í þessar ferðir. Farinn er Fossaferðin eins og við köllum hana og tekur ca.3-5 klst. ( flottur hringur ) og margt að sjá.
Verð. kr. 17.500 pr.mann miðað við tvo á hjóli.

Skráning og nánari uppl:
Unnar s.661 2503
info@icesafari.is
info@atvtravel.is

2.3.10

Zik zak 27.feb. 2010.

Helgin var skemmtileg, þrátt fyrir smá vonbrigði með að ekki snjóaði
hér á svæðinu. Berglind í Zik Zak mætti ásamt starfsfólki sínu og vinum í fjórhjólaferð, sem var hin skemmtilegasta. Krydduð með snjóéljum, hvössum að norðan og vel af frosti.

Sjá myndir úr ferðinni : smella á mynd.

25.2.10

Helgin 26.-28.febr

Loksins loksins snjór, allir velkomnir í Hólaskóg um helgina.

uppl. s.661-2503

22.2.10

Hrafntinnusker-Jónsvarða 20.febr.2010


j febr.2010 e 123
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Hún var flott ferðin sem við fórum síðastliðinn laugardag. Það voru fimm fjórhjól sem lögðu af stað um hádegi úr Hólaskógi, Héldum austur Dómadal með viðkomu í Áfangagili, brunuðum í björtu og fallegu veðri að brekkunni löngu upp í sker, en þar fyrst þurftum við að hleypa úr dekkjunum. Nú tók við ferðalag á snjó með ægifögru og miklu útsýni. Gekk okkur eins og í sögu að finna leiðir, krossa ár og gil alla leið að Jónsvörðu. Jónsvarðan er einn flottasti útsýnisstaður sem ég hef komið á. Tindfjöll, Eyjafjallajökull og í raun stór hluti af hinum vinsæla Laugarvegi er allt fyrir augunum. Og síðan skemmir ekki að hverinn stóri er aðeins í 100m. fjarlægð í hina áttina. Tókum við stóra nestis stoppið á þessum magnaða stað. Veit ekki hvort hverinn hefur nafn, en mér var sagt að hann væri öflugasti gufuhver á landinu. Veður hélst bjart og fallegt alveg til kvölds þegar við skiluðum okkur til baka eftir ca.7 -8 tíma ferðalag.

18.2.10

Jónsvarða í Ljósufjöllum laugard.20.febr.

Skemmtileg ferð framundan, en hugmyndin er að fara í Hrafntinnusker,að íshellinum og þaðan suður að stóru hverunum, og njóta síðan útsýnis frá Jónsvörðu þar skammt frá.
Þegar þetta er skrifað eru komin þrjú hjól í ferðina, höfum enn sex hjól sem hægt er að fá leigð í þessa ofur vetrarfjórhjólaferð.
Einnig mæta í ferðina fjórir kappar sem ætla síðan lengra (strútslaug ) og munu þessir tveir hópar vera samferða að Jónsvörðu. Á myndinni hér til hliðar sést yfir væntanlegt ferðasvæði okkar ( tekið ofan af Heklu ) Hjól í ferðina kr. 35.000 Gisting innifalin í Hólaskógi.
uppl. s. 661-2503

Kynningarferð farin 17.febrúar sl.

Mættir voru fulltrúar frá Hótel Hvolsvelli þeir Óli Jón og Gummi,einnig var mættur Benedikt Kristinsson eigandi Vulkan Travel Group með fjölskyldu sinni.
Í hópinn bættist síðan fjölskylda frá Sviss. þannig að úr varð raunveruleg túrista ferð.
Fórum við á hjólunum um næsta nágrenni við Hólaskóg.
( fossaferðin )
Og í stuttu máli varð þetta hinn skemmtilegasti túr. ( eins og alltaf )

4x4 vesturlandsdeild - þorrablótið flautað af ( lítil þátttaka )

Úr því svona fór, er nóg af gistiplássi í Hólaskógi næstu helgi.

15.2.10

Þorrablót 4x4 vesturlandsd. 19-20.febr. 2010

Vesturlandsdeildin hjá 4x4 mætir í Hólaskóg á föstudagskvöld.
Halda þau þar árlegt Þorrablót sitt aftur hér í Hólaskógi,sem er ánægjulegt fyrir okkur enda skemmtilegt fólk á ferð.
Skilst mér að það verði farin einhver jeppa ferð á laugardag og svo eftir hana hefst mikil þorramats átveisla með öllu sem því fylgir.
Langtíma spáin er góð frost og heiðskýrt þannig að það stefnir í snilldar helgi í Hólaskógi, og ekki má gleyma að við hjá Óbyggðaferðum erum líka með ferðir á fjórhjólunum alla daga ársins fyrir stóra og smáa hópa.

14.2.10

Viddi og vinir.13. febr. 2010


Viddi og vinir.
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Þau mættu gallvösk frá Hótel Örk í fjórhjólaferð hér hjá okkur í Óbyggðaferðum. Áttum skemmtilegan dag ,svolítið blautt.
Fórum við víða og skoðuðum mikið, er með ritstíflu svo þessi frétt verður ekki öllu lengri, en smellir þú á myndina sérðu fleiri myndir úr ferðinni.

8.2.10

Helgin 5-7 febrúar 2010


Skálinn í Laugum
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Skemmtileg ferð síðustu helgi, færi og skyggni frábært. Í stuttu máli
vorum við mjög víðförlir, fórum Krakatindaleið í Laugar með viðkomu á nokkrum fjallstoppum sem urðu á leið okkar. Þegar aðstæður eru svona ( harðfenni og allt pikkfrosið ) er einfaldlega frábært að fara um víðan völl og skoða okkar fallegu náttúru,frá öðrum sjónarhornum en kanski oft áður.

Sjá myndir smella á myndina.

4.2.10

Fjórhjól og Jeppar í Landmannalaugar næstu helgi.

Nú líður að helgi og stefnir í bjart veður og mikinn kulda.
Sem er ávísun á mikla fegurð á fjöllum.
Við hjá Óbyggðaferðum erum því að skipuleggja stóra Landmannalaugaferð frá Hólaskógi á laugardagsmorgun.
Jafnt Fjórhjól sem Jeppar ( gæti orðið skemmtilegt samflot )
Prógr. einhvernvegin svona.
Mæta í Hólaskóg á föstudagskvöld gera klárt fara í sauna,og kanski einhvern kvöldskrepp.
Morgunmatur kl. 8 - 9 og af stað um kl. 10 svo er bara farið í Laugar eflaust dreifist mannskapurinn eitthvað sem er bara allt í lagi enda frjálsleg ferð, og allir eru foringjar.
Eftir stopp í Landmannalaugum er farin einhver skemmtileg leið til baka í Hólaskóg ,þar sem við skoðum myndir á breiðtjaldi frá ferðinni fyrr um daginn. Og auðvitað grill sauna og einn kaldur.
Þátttökugjald : kr. 5000 á mann. ( tvær gistingar, sauna.og ferðalagið ) Menn koma með góðaskapið svefnpoka og matvæli með sér. Er hæt að fá leigð fjórhjól í ferðina hjá Óbyggðaferðum
fyrir aðeins 30.000 kr. og er þá gisting og Útbúnaður innifalið.

Skráning. e-mail : info @ icesafari.is eða í síma 661-2503

1.2.10

Þorrablót. Suðurnesjahópurinn

Það voru engir nýliðar í þorrablótum og fjallaferðum sem mættu og héldu árlegt þorrablót sitt í Hólaskógi síðustu helgi.
Heiðruðu þau staðinn með nærveru sinni frá föstudegi til sunnudags.
Það var ekki bara borðaður þorramatur þessa helgi, því hluti hópsins fór í jeppatúr að Heklu, aðrir slökuðu á í húsinu eða fóru í gönguferðir um nágrennið. Og að sjálfsögðu nýttu menn sér hið magnaða fjalla sauna í Hólaskógi.
Fjórmenningarnir frems á myndinni hér til hliðar,eru upphafsmennirnir að þessum þorraferðum, sem hafa verið farnar í 26 ár. frá vinstri. Raggi bakari. Árni Óla. Gunni Matt. Garðar Sig.

Smella á mynd til að sjá fleiri myndir.

Miðnæturferð á Heklu. 30.jan.2010.

Það voru tólf vaskir menn sem lögðu í Hekluna um kl. 21.30
Fullt tungl og heiðskýrt tíu til 15 gráðu frost, og fjallasýn hin besta.
Ætlunin var að vera á toppi Heklu á miðnætti og njóta tunglskyns,útsýnis og norðurljósa þaðan. Ekki reindist fært alla leið á topp vegna snjóleysis í hrauninu. en engu að síður var þessi ferð á fjórhjólunum mikið og skemmtilegt ævintýri. Þar sem tunglið lýsti sem að væri dagur, og við fengum líka stutta norðurljósa sýningu. komum aftur í Hólaskóg um kl. eitt eftir miðnætti. Þetta verður örugglega endurtekið þegar aðstæður leyfa.

29.1.10

Heklan


Heklan
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Fullt tungl og heiðskýrt á morgun 30.jan. Nú er harðfenni og mjög
gott færi, erum við með miðnæturferð á Heklu á laugardagskvöld.
Farið á fjórhjólum frá Hólaskógi um kl. 21 brunum á toppinn á hjólunum og njótum tunglsljóss og vonandi norðurljósa.
Er þetta hið mesta ævintýri og kemur mörgum á óvart hversu björt fjalla nóttin getur orðið. Áhugasamir geta leigt hjól í ferðina á aðeins 20.000 kr.

Uppl. s. 661-2503 hjá Unnari.

10.1.10

Hilton Hotel - starfsmannaferð þann 9. jan.2010


jan 2010 089
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Það var föngulegur hópur kokka og þjóna frá Hilton Hotelinu sem mættu gallvösk, þrátt fyrir rok og rigningar spá í fjórhjóla ferðalag með Óbyggðaferðum . Var hópurinn í starfsmannaferð þessa helgi. Við sóttum þau á Hótel Flúðir eftir morgunverð. Hjólaferðalagið byrjaði eins og oftast áður frá aðalbækistöðvum Óbyggðaferða í Hólaskógi. Var farið um víðan völl og allt það helsta í Þjórsárdal skoðað. Eftir kaffisopa í Hólaskógi var hópnum skilað aftur á Hótel
Flúðir,en nú bjóðum við uppá slíka þjónustu fyrir minni hópa.

Til að sjá myndir úr þessari skemmtilegu ferð þa er smellt á myndina sem er hér við textann.