Það eru engar ýkjur ef ég segi að ferðin síðustu helgi hafi verið dálítið erfið á köflum. En við vorum á ferðinni umkringd fegurð fjalla, dala og Jökla fram á nótt. Lögðum af stað frá Hólaskógi um hádegi, fengum sand og moldrok að Heklu, síðan héldum við beina leið að Dalakofanum ( nesti og kaffi ) leiðin lá síðan suður undir Laufafell, þaðan að Álftarvatni ( myndin til hliðar tekin þar ) haldið áfram í Hvanngil, stoppuðum þar bættum bensíni á hjólin og næringu í kroppinn. Var nú tekin stefnan á Mýrdalsjökul og ætlunin var að fara hann endilangann til suðurs að eldstöðinni, á Fimmvörðuhálsi. Ekki vorum við komin langt inn á jökul þegar færið versnaði all verulega og ljóst var að ekki næðist að komast þá leið að eldgosinu. Héldum því næst niður Mælifellssand að Markarfljótsgljúfri, ( þar var flott útsýni yfir á gosstöðvarnar ) næst lá leiðin niður Fljótshlíðina til Hvolsvallar og Hellu. Þaðan ekið á móti norðanvindi og brunagaddi alla leið til baka í Hólaskóg. Hörku ferð og hörku mannskapur.
0 comments:
Post a Comment