22.2.10

Hrafntinnusker-Jónsvarða 20.febr.2010


j febr.2010 e 123
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Hún var flott ferðin sem við fórum síðastliðinn laugardag. Það voru fimm fjórhjól sem lögðu af stað um hádegi úr Hólaskógi, Héldum austur Dómadal með viðkomu í Áfangagili, brunuðum í björtu og fallegu veðri að brekkunni löngu upp í sker, en þar fyrst þurftum við að hleypa úr dekkjunum. Nú tók við ferðalag á snjó með ægifögru og miklu útsýni. Gekk okkur eins og í sögu að finna leiðir, krossa ár og gil alla leið að Jónsvörðu. Jónsvarðan er einn flottasti útsýnisstaður sem ég hef komið á. Tindfjöll, Eyjafjallajökull og í raun stór hluti af hinum vinsæla Laugarvegi er allt fyrir augunum. Og síðan skemmir ekki að hverinn stóri er aðeins í 100m. fjarlægð í hina áttina. Tókum við stóra nestis stoppið á þessum magnaða stað. Veit ekki hvort hverinn hefur nafn, en mér var sagt að hann væri öflugasti gufuhver á landinu. Veður hélst bjart og fallegt alveg til kvölds þegar við skiluðum okkur til baka eftir ca.7 -8 tíma ferðalag.

0 comments: