Bjóðum nú upp á ferðir að toppgíg Eyjafjallajökuls á fjórhjólum,ferðin hefst frá tjaldstæðinu við Hamragarða skammt frá Seljalandsfossi. Leiðin liggur upp Hamragarðaheiði nokkuð torfarin slóða en ekki vandamál fyrir fjórhjólin, þegar í snjó og á jökul er komið skiptum við yfir á fjórhjól með beltum, sem flytja okkur auðveldlega upp jökulinn alla leið á topp þar sem gígurinn blasir við sjónum okkar. Auk þess að sjá ummerki hamfaragossins er útsýnið af toppnum stórfenglegt vægt til orða tekið, Vestmannaeyjar, suðurströndin og óhemju mikil og fögur fjallasýn. svona ferð tekur ca. 4-6 tíma og er hámarksfjöldi 5 manns í einu. verð. kr. 39.000 á manninn.
Ath. að þessar ferðir eru aðeins viðbót á allar þær skemmtilegu og fjölbreyttu skoðunarferða sem við höfum boðið uppá sl. fjögur ár frá Hólaskógi.
25.5.11
IMG_8206
Posted by obyggdir at 5:14 PM
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Post a Comment