Bjóðum nú upp á ferðir að toppgíg Eyjafjallajökuls á fjórhjólum,ferðin hefst frá tjaldstæðinu við Hamragarða skammt frá Seljalandsfossi. Leiðin liggur upp Hamragarðaheiði nokkuð torfarin slóða en ekki vandamál fyrir fjórhjólin, þegar í snjó og á jökul er komið skiptum við yfir á fjórhjól með beltum, sem flytja okkur auðveldlega upp jökulinn alla leið á topp þar sem gígurinn blasir við sjónum okkar. Auk þess að sjá ummerki hamfaragossins er útsýnið af toppnum stórfenglegt vægt til orða tekið, Vestmannaeyjar, suðurströndin og óhemju mikil og fögur fjallasýn. svona ferð tekur ca. 4-6 tíma og er hámarksfjöldi 5 manns í einu. verð. kr. 39.000 á manninn.
Ath. að þessar ferðir eru aðeins viðbót á allar þær skemmtilegu og fjölbreyttu skoðunarferða sem við höfum boðið uppá sl. fjögur ár frá Hólaskógi.
25.5.11
IMG_8206
Posted by obyggdir at 5:14 PM 0 comments
15.3.11
Stöndum vörð um ferðafrelsið okkar.
Tekið við Þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal, en nú standa yfir mjög víðtækar lokanir á aðgengi fatlaðra og allra sem ekki eiga svo gott að vera fullfrískir til langra gönguferða um hálendi Íslands. Samtökin FERÐAFRELSI berjast gegn slíku óréttlæti. Við hjá Óbyggðaferðum erum stolt af að hafa verið ein fárra ferðaþjónustuaðila sem stutt hafa þeirra málstað og stiðjum að sjálfsögðu áfram.
Posted by obyggdir at 3:47 PM 0 comments
9.3.11
Topp ferð í stormi og hríð 6. mars 2011
Skemmtileg og krefjandi ferð sjö félaga með okkur. Ætlunin var að skoða fossinn Dynk en sökum snjóstorms og ofankomu urðum við að snúa við þegar skammt var eftir að Gljúfurleitarskálanum. ( skyggni 0 ) tókum stutt matarhlé í Hólaskógi og síðan tekin stefnan á Háafoss og þaðan fórum við eftir Stangarfellinu endilöngu og niður að Gjánni.Leiðin lá síðan að Hjálparfossi og Þjóðveldisbærinn var skoðaður í bakaleiðinni. Frábær dagur þrátt fyrir mjög slæmt veður á köflum.
Posted by obyggdir at 2:11 PM 0 comments
16.12.10
Fossaferðin hjá Óbyggðaferðum : myndband
thttp://www.youtube.com/watch?v=1RA8jQqZmy0il að sjá myndbandið smella á linkinn
Posted by obyggdir at 12:20 AM 0 comments
27.11.10
Í Hekluhlíðum á miðnætti 27.11.2010
Posted by obyggdir at 12:16 PM 0 comments
10.11.10
Gengið til rjúpna með myndavélina að vopni
Posted by obyggdir at 3:23 PM 1 comments
14.10.10
Ferðafrelsi 874 - 2010
Smellir þú ámyndina hér til hliðar , sérðu fleiri myndir sem voru teknar 2.okt. 2010 í mótmælaferð sem farin var í Vonarskarð.
Posted by obyggdir at 1:44 AM 0 comments