25.2.10

Helgin 26.-28.febr

Loksins loksins snjór, allir velkomnir í Hólaskóg um helgina.

uppl. s.661-2503

22.2.10

Hrafntinnusker-Jónsvarða 20.febr.2010


j febr.2010 e 123
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Hún var flott ferðin sem við fórum síðastliðinn laugardag. Það voru fimm fjórhjól sem lögðu af stað um hádegi úr Hólaskógi, Héldum austur Dómadal með viðkomu í Áfangagili, brunuðum í björtu og fallegu veðri að brekkunni löngu upp í sker, en þar fyrst þurftum við að hleypa úr dekkjunum. Nú tók við ferðalag á snjó með ægifögru og miklu útsýni. Gekk okkur eins og í sögu að finna leiðir, krossa ár og gil alla leið að Jónsvörðu. Jónsvarðan er einn flottasti útsýnisstaður sem ég hef komið á. Tindfjöll, Eyjafjallajökull og í raun stór hluti af hinum vinsæla Laugarvegi er allt fyrir augunum. Og síðan skemmir ekki að hverinn stóri er aðeins í 100m. fjarlægð í hina áttina. Tókum við stóra nestis stoppið á þessum magnaða stað. Veit ekki hvort hverinn hefur nafn, en mér var sagt að hann væri öflugasti gufuhver á landinu. Veður hélst bjart og fallegt alveg til kvölds þegar við skiluðum okkur til baka eftir ca.7 -8 tíma ferðalag.

18.2.10

Jónsvarða í Ljósufjöllum laugard.20.febr.

Skemmtileg ferð framundan, en hugmyndin er að fara í Hrafntinnusker,að íshellinum og þaðan suður að stóru hverunum, og njóta síðan útsýnis frá Jónsvörðu þar skammt frá.
Þegar þetta er skrifað eru komin þrjú hjól í ferðina, höfum enn sex hjól sem hægt er að fá leigð í þessa ofur vetrarfjórhjólaferð.
Einnig mæta í ferðina fjórir kappar sem ætla síðan lengra (strútslaug ) og munu þessir tveir hópar vera samferða að Jónsvörðu. Á myndinni hér til hliðar sést yfir væntanlegt ferðasvæði okkar ( tekið ofan af Heklu ) Hjól í ferðina kr. 35.000 Gisting innifalin í Hólaskógi.
uppl. s. 661-2503

Kynningarferð farin 17.febrúar sl.

Mættir voru fulltrúar frá Hótel Hvolsvelli þeir Óli Jón og Gummi,einnig var mættur Benedikt Kristinsson eigandi Vulkan Travel Group með fjölskyldu sinni.
Í hópinn bættist síðan fjölskylda frá Sviss. þannig að úr varð raunveruleg túrista ferð.
Fórum við á hjólunum um næsta nágrenni við Hólaskóg.
( fossaferðin )
Og í stuttu máli varð þetta hinn skemmtilegasti túr. ( eins og alltaf )

4x4 vesturlandsdeild - þorrablótið flautað af ( lítil þátttaka )

Úr því svona fór, er nóg af gistiplássi í Hólaskógi næstu helgi.

15.2.10

Þorrablót 4x4 vesturlandsd. 19-20.febr. 2010

Vesturlandsdeildin hjá 4x4 mætir í Hólaskóg á föstudagskvöld.
Halda þau þar árlegt Þorrablót sitt aftur hér í Hólaskógi,sem er ánægjulegt fyrir okkur enda skemmtilegt fólk á ferð.
Skilst mér að það verði farin einhver jeppa ferð á laugardag og svo eftir hana hefst mikil þorramats átveisla með öllu sem því fylgir.
Langtíma spáin er góð frost og heiðskýrt þannig að það stefnir í snilldar helgi í Hólaskógi, og ekki má gleyma að við hjá Óbyggðaferðum erum líka með ferðir á fjórhjólunum alla daga ársins fyrir stóra og smáa hópa.

14.2.10

Viddi og vinir.13. febr. 2010


Viddi og vinir.
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Þau mættu gallvösk frá Hótel Örk í fjórhjólaferð hér hjá okkur í Óbyggðaferðum. Áttum skemmtilegan dag ,svolítið blautt.
Fórum við víða og skoðuðum mikið, er með ritstíflu svo þessi frétt verður ekki öllu lengri, en smellir þú á myndina sérðu fleiri myndir úr ferðinni.

8.2.10

Helgin 5-7 febrúar 2010


Skálinn í Laugum
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Skemmtileg ferð síðustu helgi, færi og skyggni frábært. Í stuttu máli
vorum við mjög víðförlir, fórum Krakatindaleið í Laugar með viðkomu á nokkrum fjallstoppum sem urðu á leið okkar. Þegar aðstæður eru svona ( harðfenni og allt pikkfrosið ) er einfaldlega frábært að fara um víðan völl og skoða okkar fallegu náttúru,frá öðrum sjónarhornum en kanski oft áður.

Sjá myndir smella á myndina.

4.2.10

Fjórhjól og Jeppar í Landmannalaugar næstu helgi.

Nú líður að helgi og stefnir í bjart veður og mikinn kulda.
Sem er ávísun á mikla fegurð á fjöllum.
Við hjá Óbyggðaferðum erum því að skipuleggja stóra Landmannalaugaferð frá Hólaskógi á laugardagsmorgun.
Jafnt Fjórhjól sem Jeppar ( gæti orðið skemmtilegt samflot )
Prógr. einhvernvegin svona.
Mæta í Hólaskóg á föstudagskvöld gera klárt fara í sauna,og kanski einhvern kvöldskrepp.
Morgunmatur kl. 8 - 9 og af stað um kl. 10 svo er bara farið í Laugar eflaust dreifist mannskapurinn eitthvað sem er bara allt í lagi enda frjálsleg ferð, og allir eru foringjar.
Eftir stopp í Landmannalaugum er farin einhver skemmtileg leið til baka í Hólaskóg ,þar sem við skoðum myndir á breiðtjaldi frá ferðinni fyrr um daginn. Og auðvitað grill sauna og einn kaldur.
Þátttökugjald : kr. 5000 á mann. ( tvær gistingar, sauna.og ferðalagið ) Menn koma með góðaskapið svefnpoka og matvæli með sér. Er hæt að fá leigð fjórhjól í ferðina hjá Óbyggðaferðum
fyrir aðeins 30.000 kr. og er þá gisting og Útbúnaður innifalið.

Skráning. e-mail : info @ icesafari.is eða í síma 661-2503

1.2.10

Þorrablót. Suðurnesjahópurinn

Það voru engir nýliðar í þorrablótum og fjallaferðum sem mættu og héldu árlegt þorrablót sitt í Hólaskógi síðustu helgi.
Heiðruðu þau staðinn með nærveru sinni frá föstudegi til sunnudags.
Það var ekki bara borðaður þorramatur þessa helgi, því hluti hópsins fór í jeppatúr að Heklu, aðrir slökuðu á í húsinu eða fóru í gönguferðir um nágrennið. Og að sjálfsögðu nýttu menn sér hið magnaða fjalla sauna í Hólaskógi.
Fjórmenningarnir frems á myndinni hér til hliðar,eru upphafsmennirnir að þessum þorraferðum, sem hafa verið farnar í 26 ár. frá vinstri. Raggi bakari. Árni Óla. Gunni Matt. Garðar Sig.

Smella á mynd til að sjá fleiri myndir.

Miðnæturferð á Heklu. 30.jan.2010.

Það voru tólf vaskir menn sem lögðu í Hekluna um kl. 21.30
Fullt tungl og heiðskýrt tíu til 15 gráðu frost, og fjallasýn hin besta.
Ætlunin var að vera á toppi Heklu á miðnætti og njóta tunglskyns,útsýnis og norðurljósa þaðan. Ekki reindist fært alla leið á topp vegna snjóleysis í hrauninu. en engu að síður var þessi ferð á fjórhjólunum mikið og skemmtilegt ævintýri. Þar sem tunglið lýsti sem að væri dagur, og við fengum líka stutta norðurljósa sýningu. komum aftur í Hólaskóg um kl. eitt eftir miðnætti. Þetta verður örugglega endurtekið þegar aðstæður leyfa.