7.4.09

Páskar í Hólaskógi


Heklan
Originally uploaded by Óbyggðaferðir
Opið er hér alla páskana og stefnan er að gera skemmtilega hluti hér uppfrá, sé fyrir mér Hekluferðir og eins styttri ferðir á fjórhjólunum . Fullt tungl er um þessar mundir svo ekki ætti að útiloka miðnæturferð á Heklu ( ef heiðskýrt ) sem er alveg einstök upplifun og kemur manni skemmtilega á óvart. Annars er bara alveg opið fyrir allar góðar hugmyndir. Það er nóg pláss í skálanum og saunabaðið í topp standi þannig að allir ættu að geta dekrað við sig um páskana hér í Hólaskógi. kveðja Unnar s.661 2503

0 comments: