Opið er hér alla páskana og stefnan er að gera skemmtilega hluti hér uppfrá, sé fyrir mér Hekluferðir og eins styttri ferðir á fjórhjólunum . Fullt tungl er um þessar mundir svo ekki ætti að útiloka miðnæturferð á Heklu ( ef heiðskýrt ) sem er alveg einstök upplifun og kemur manni skemmtilega á óvart. Annars er bara alveg opið fyrir allar góðar hugmyndir. Það er nóg pláss í skálanum og saunabaðið í topp standi þannig að allir ættu að geta dekrað við sig um páskana hér í Hólaskógi. kveðja Unnar s.661 2503
7.4.09
3.4.09
Óbyggðaferðir með páskahátíð í Hólaskógi
Nú er stutt í páskana og hugmyndin er að halda einhverskonar páskahátíð í Hólaskógi. ( Jeppafólk göngufólk hjólafólk skíða bretta eða bara allir sem hafa ánægju af samvistum við aðra og eru bara almennt jákvæðir ) Gaman væri að sjá sem flest ykkar um páskana. Nánari dagskrá síðar hér á síðunni Unnar.
Posted by obyggdir at 9:51 AM 3 comments
2.4.09
Árshátíð Svefn og Heilsu 28. mars 2009
Eins og við var að búast var mikið fjör og gaman hjá þeim í Svefn og Heilsu um síðustu helgi hér í Hólaskógi. Fjórhjólaferðin í snjómuggu en að öðru leyti gott veður. Myndirnar segja kanski meira hvernig stemminginn var og smellir þú hér á myndina hér til hliðar sérðu fleiri mymdir frá árshátíðinni.
Posted by obyggdir at 1:22 AM 0 comments
Subscribe to:
Posts (Atom)