15.12.08

Hekluferðin

Nú er þessi ferð á enda, og má segja að Hekla hafi ekki viljað hleypa upp á sig þennan dag, allavega ekki fyrirhafnarlaust. Mæting var mjög góð í þessa ferð, 17 fjórhjól. Átján manns og einn hundur lögðu á fjallið um kl. 11 á laugardagsmorgun. Fljótlega við rætur Heklu fóru menn að fá smjörþefinn af því sem koma skyldi. Djúpur púðursnjór og hvergi hægt að

forðast hann. Sóttist ferðin samt ágætlega lengi vel. Þegar kom að hraunjaðrinum fyrir neðan löngu brekkurnar upp Heklu versnaði færið enn meira.Til að gera góða sögu stutta , þá má segja að færri hafi komist á toppinn en vildu. Held ég að margir úr þeim hóp ætli sér upp fyrr en seinna. Veðrið gat varla verið betra eða fallegra, svo allir voru glaðir með sitt, að ég best veit.Þeir síðustu skiluðu sér í Hólaskóg um kl. 20 (myndir á heimasíðu Óbyggðaferða)

0 comments: