13.1.09

Þarna sjáið þið Mikka ref.,

Langar að vekja athygli á skemmtilegum myndum (video) frá refnum, sem mörg hver eru tekin í ferðum hjá Óbyggðaferðum, enda kallinn mjög duglegur að ferðast youtube.com/fjorhjolari..... Síðan fyrir þá sem ekki vita langar mig að vekja athygli á því að í Hólaskógi er frábær aðstaða til mannfagnaða svo sem afmæla, þorrablóta, og bara nefndu það, það verður allt frábært í Hólaskógi.

9.1.09

Atvinnu björgunar menn.

Fleiri myndir komnar á síðuna......smella á mynd ...>

8.1.09

HB Grandi 24 febr. 2008.

Er að dunda við að setja myndir úr eldri ferðum á síðuna. Þessar myndir eru úr ferð sem strákar frá HB Granda fóru í febrúar síðastl. Það má eiginlega segja að þeir hafi toppað ferðina áður en lagt var í hann. Þeir lentu í því óhappi að velta bílnum móts við Sultartangavirkjun. Eftir að hafa villst örlítið fram hjá Hólaskógi. Blessunarlega meiddist enginn, og áttu allir mjög góðan dag á fjöllum. skoða fleiri myndir smella á myndina....>

6.1.09

Myndir úr ferðinni þann 30. des.

Það var flottur hópur sem lagði í hann um hádegisbil.Alls sex hjól og meðal annarra breskt par sem var á Íslandi í brúðkaupsferð. Myndir úr ferðinni eru ekki hágæða enda ekki gott að mynda í þoku. Þokan gerði allar áætlanir um Hekluferð að engu, svo stefnan var tekin í Landmannahelli eða Laugar. Eftir þessa ferð ætla ég aðeins að endurskoða álit mitt á Polarishjólunum í snjónum, því Otri var að gera mjög góða hluti á sínu hjóli.( er samt 130kg. að líkamsþy ngd) ´ sjá myndir smella á mynd >